Tóbakshornið:

Ég hef nú bætt við tóbaki vikunnar, kaffi vikunnar og lagi vikunnar hér til hliðar og er það mín einlæga von að einhverjum finnist þetta gott framtak um að koma hlutum á framfæri. Ég vil taka það fram að þó að ég mæli með tóbakstegund vikunnar þá er ég ekki að hvetja neinn til að byrja að reykja og að þetta er ekki gert til vanvirðingar við vanreykingamenn heldur er þetta eingöngu ætlað þeim sem hafa lært að kunna að meta pípur og það tóbak sem þeim fylgir. Ég vil líka taka það fram að ég hyggst halda áfram að birta tóbak vikunnar og ef það fer í taugarnar á einhverjum þá skal viðkomandi vinsamlegast láta mig vita.

Þess fyrir utan þá eru fjögur próf nú búin og eru þá átta eftir. Mér gekk alveg ótrúlega vel í ritgerðarprófinu í dag og býst ég við níu eða hærra.

Ég hvet hér með alla lesendur bloggs þessa (ef einhverjir eru) til að kynna sér Tom Waits. Ske kynni að þið hefðuð gaman að tónlist hans.