111533016650997043

Stríðsæsingamaðurinn og ríkisstjórnarsleikjan hún móðir mín er á móti mínum stjórnmálaskoðunum til þess eins að vera á móti þeim. Kallar hún mig „of ungan“ og „fáfróðan sökum aldurs“ enda sé hún „miklu lífsreyndari“ en ég. Eins og aldur skipti einhverju máli í því samhengi. Ég er orðinn djöfull þreyttur á því að vera rakkaður niður fyrir skoðanir mínar (sem ég hef fullan rétt á samkvæmt stjórnarskránni). Löngum sit ég og velti því fyrir mér að flytja eitthvað annað. Helst þar sem skoðanir mínar eru ekki virtar að vettugi. Það er nú augljósara en nokkru sinni fyrr að mamma er mótfallin tilvist minni, eða af hverju skyldi hún þá annars gera lítið úr gáfnafari mínu og hugsunarhætti daglega? Staðhæfi ég hér með að mömmur séu og muni alltaf verða börnum sínum til trafala.

111533010713834892

Annar vinnudagur liðinn, annar gítartími einnig. Það kraftaverk gerðist að mér tókst að læra það sem sett var fyrir en í næsta verkefni á ég við ramman reip að draga. Þar sem ég efast um að nokkur af lesendum þessa bloggs muni skilja hið sjúka tæknimál yfir það sem ég þarf að læra hef ég ákveðið að sleppa því að reyna að útskýra það. Ég hef viku og ég mun þurfa hana alla.