111533499174949326

Hva…
enginn póstur frá Halla? Varla getur hann hafa fengið betri upplýsingar um Kipling en þær sem ég gaf honum. Í mínu var tekið fram:
1: Rithöfundur
2: Skrifaði Jungle Book
3: Frímúrari
4: Kom fram sem persóna í kvikmyndinni „The Man Who Would be King“.
Alveg framúrskarandi svar miðað við það að ég leitaði ekki á neinni leitarsíðu eins og Steindór. Svo ætti hvaða maður að geta séð það, fyrst Kipling skrifaði Jungle Book, að hann var ekkert merkilegur gaur.