Önnur getraun

Hér er önnur getraun, af þeirri ástæðu að hin var svo fljótlega búin:

1: Númer hvað í seríunni er þessi Doomleikur?
2: Hvað heitir hauskúpan?
3: Hvað heitir rauði kallinn?
4: Hvað heitir tölvan sem þessi útgáfa leiksins er sérhönnuð fyrir?

Verðlaunin eru 5 sleikjóar fyrir hvern svarmöguleika. Þannig ef einn maður svarar fyrstu tveimur spurningunum rétt en einhver annar svarar þriðju spurningunni fær sá fyrrnefndi 10 sleikjóa en sá síðari 5. Ekki er hægt að svara einni spurningu oftar en einu sinni.

Samræðulistin

Annars átti ég heilbrigt spjall við bekkjarsystur mína í dag. Talið barst að útlöndum og hún tjáði mér það að hún hefði eitt sinn tekið ferju frá Costa del Sol til Aþenu. Þegar liðið hafði á ræður okkar lýsti hún áhuga sínum á því að fara til Grikklands, því þangað hefði hún aldrei komið.

Það ber einnig vel að merkja að hún hélt því fram að allar merkingar í Aþenu hefðu verið á arabísku, sem kollvarpar þeirri hugmynd náttúrulega algjörlega að þær séu á grísku. Merkilegt hvað sannleikurinn kemur manni oft í opna skjöldu, ha?