111713342911853191

Ég var ánægður þegar fíflið á efri hæðinni flutti. Ástæða þess er að hann hafði tilhneygingu til að bora í maí, s.s. þegar ég var að læra undir próf. Þetta gerði hann í FJÖGUR ÁR!

Nú er komið nýtt fífl á efri hæðina, sem n.b. er alveg jafn duglegt við að bora göt í vegginn! Talandi um veggi: Eru einhverjir veggir eftir í allri andskotans íbúðinni?! Er ekki búið að bora þá alla í burtu? Þetta er algjörlega óþolandi. Hvað er að þessari íbúð sem knýr eigendur hennar ár frá ári til að bora svona mikið? Ekki veit ég svarið við því.