111713477822809347

Síðast ég vissi vildu konur að báðar klósettseturnar skyldu settar niður, því þeim þætti það betri frágengni, og ég er alveg sammála því. Þetta er sami hlutur og t.d. að loka skápnum eftir að maður hefur sótt sér glas þangað. Það þykir mér lítil afsökun að segja alltaf að „það taki því ekki“ að ganga frá eftir sig.

Ekki að ég uppfylli eigin standarda. Raunar mætti frekar segja að ég geri þveröfugt við það sem ég boða hér, en engu að síður þykir mér það góður siður að skilja seturnar eftir niðri.