Andleysi

Mér finnst ég eitthvað svo andlaus orðinn eftir að ég skipti um blogg. Ég get einfaldlega ekki skrifað neitt af viti. Ég veit ekki hvernig ég get náð mér upp á strik aftur. Ég neyðist örugglega til að taka mér frí frá blogginu. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég finn alltaf nóg til að skrifa um þegar ég er ekki að blogga. Bloggfríið sem ég tók mér í fyrra er t.d. gott dæmi um það, en ég entist ekki nema í viku án þess að blogga.

Hér skilja því leiðir, kæru lesendur (ef einhverjir eru). Ég er hættur uns ég finn eitthvað til að skrifa um.