Month: júní 2004
108862897311349028
108862879357296028
108862449708462888
Það var ágætur vinnustaðahrekkur í dag. Einn félaginn var grafinn alveg ofan í sandkassa með fötu yfir höfðinu. Svo var annar sendur til að ná í fötuna. Niðurstaðan var verulega fyndin, þó ég segi ekki meira.
108854186866712292
„Hann var mikill maður og sterkur, nefmikill, stórbeinóttur í andliti, rauðbleikur á hár og vikóttur snemma, skolbrúnn, eygður mjög og vel. Hann var ofstopamaður mikill og fullur ójafnaðar og fyrir því var hann Styr kallaður“.
og Þórólfur bægifótur, en hann verður helst athyglisverður þegar líða tekur á söguna: „Hann tók nú að eldast fast og gerðist illur og æfur við ellina og mjög ójafnaðarfullur“.
Ef einhver hluti sögunnar er skemmtilegri en sagan af skúrknum honum nafna mínum og berserkjunum tveimur, er það frásögnin af geðvonsku Þórólfs bægifótar og launráðum hans. Því fer ei fjarri að bægifótur var fantur og fúlmenni.
Mæli ég með þessari sögu við hvern þann er áhuga hefur á lestri Íslendingasagna.
Snilld
Þá kom að Álfur hinn litli og bað þá eigi taka hvalinn.
Óspakur mælti: „Far þú eigi til Álfur,“ segir hann, „þú hefir haus þunnan en eg hefi öxi þunga. Mun ferð þín verri en Þóris ef þú gengur feti framar.“
Þetta heilræði hafði Álfur sem honum var kennt.
Tekið úr Eyrbyggja sögu.
108852851404339045
Eftir vinnu í dag gekk ég út í biðskýli nokkurt við Bústaðaveginn. Er strætisvagninn loks lét sjá sig sté ég um borð. Reyndist bílstjóri vera gýgur mikil af áður óþekktri stærðargráðu, og varð ég smeykur mjög við upplitið. Óttaðist ég, að áður strætóferð þeirri lyktaði, myndi ég neyðast til að ganga milli bols og höfuðs hennar, en það reyndist þó óþarfi. Var hún, þegar allt kom til alls, góðmennskan uppmáluð.
Og talandi um gýgur, nokkrir vinnufélagar mínir hafa tekið að efast um stærð jarls míns. Stundum held ég að þeir viti ekki við hvern þeir eiga, eða með ódauðlegum orðum mælingamannsins frá heimsmetabók Guinness: „Það þarf meira en innantóm loforð til að fjötra þann úlfinn.“
108845588266414955
Hvað önnur mál snertir hef ég hitt tvo bekkjarfélaga mína í dag, hann Bjössa og Elísabetu, sem rak þá merku síðu Rassarnir.tk þar til fyrir skemmstu. Það er merkilegt vegna þess að við félagarnir, Bjössi, Skúli, Binni og Þorke(ti)ll héngum jafnan á Pítunni, sællar minningar, og vegna þess að ég komst að því að Elísabet vinnur á Pítunni.
Ég sé það núna að í raun er þetta ekkert merkilegt.
108844672791735942
Annars var ágætt diss á Hannes Hólmstein í DV í dag. Þar var minnst á nokkra menn sem mælt var með að segðu upp störfum og færu í nám, eins og Pétur Hafstein hyggst gera. Þar var Hannes á lista og hljómaði dissið svo: Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmálafræðingur: Mætti endilega drífa sig í stjórnmálafræðina.
Í öðrum fréttum er Rafn Jónsson trommuleikari látinn. Eflaust munu margir sakna hans.