Þessi maður er fyndinn og verðskuldar tengil.
Day: 9. júní, 2004
108681403887430334
Héðan af ætla ég alltaf að þér alla sem kommenta á þessu bloggi.
108680996546661701
Í vinnunni í dag átti ég í rökræðum við einn vinnufélaga minn um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. Reyndi hann að réttlæta gjörðir ísraelsmanna með því að þeir væru ekki að sprengja nærri eins mikið og þeir raunverulega gætu. Það er s.s. allt í lagi að drepa smá, svo lengi sem maður drepur ekki of mikið, eða hvað?
108680777657699748
Þá er ég loksins búinn að skipta um strengi í gítarnum mínum, en ég hafði verið gítarlaus í tæpa tvo mánuði. Þeir sem þekkja mig vel vita að ég endist ekki lengi án gítars.
Í öðrum fréttum er hárið í hnakka mér farið að liðast. Þið vitið hvað það þýðir: Arngrímur fer í klippingu. Það sæmir mér einfaldlega ekki að vera með liðað hár.