108697582766554868

Í dag ákvað feitasti meðlimur vinnuhópsins að bera á sér sveittan rassinn, starfsfélögum sínum til sárrar frygðarminnkunar. Við megum þakka Óðni fyrir að við lifum enn. Sumir eru þó ekkert á leiðinni úr öndunarvélinni á næstunni. Það er meira að segja spurning, hvort þeir vilji á annað borð lifa, eftir að hafa séð þvílíkan hrylling.

108697520842992239

Mér flaug í hug snilldarhugmynd að flashmobbi er ég var að slá á berklahælinu í dag: Að fullt af fólki kæmi hlaupandi út af spítalanum, ælandi blóði.

Ég var hins vegar ekki sáttur við svæðið sem ég sló. Þar var allt morandi í hundaskít, svo þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig það er að slá slíkt svæði með sláttuorfi. Það þarf að fara MJÖG varlega! Eins og að keyra segulmagnaðan vörubíl gegnum jarðsprengjusvæði.

Áðan heyrði ég þul hjá ríkisútvarpinu segja að hagnaður Baugs hafi borið mjög góða ávöxtun. Æji, ekki segja svona!

Annars var gaman að heyra annan þul á sömu rás nota orðin flipp og fönkí. Það þótti mér fyndið.