Fótboltablogg

Danaveldi mætti Ikeajöfrunum í hörðum knattspyrnuleik fyrr í kveld. Hinn íslensk-ættaði Gravesen var töff og íslandsvinurinn Helveg alveg brakandi ferskur úr Múspellsheimi. Átti hinn hálf-íslenski Jon Dahl Tomasson góðan leik svo jafnvel íslensk-ættaði svíinn, Zlatan Ibrahimovich, átti erfitt með sóknarfærin. Er það mér ferskt í minni, er Jon Dahl stóð einn frammi fyrir markinu, og stöðvaði leikinn. Þá kvað hann:

„Knetti stýrir kappi,
Þórhildarþegn meðr happi.
Skalat mér bregðast.“

Svo skoraði hann svo snilldarlega að öskrin frá Stokkhólmi heyrðust langar leiðir og glumdi í Ikeamarkinu, enda holt að innan.

Stóð stórveldi dana sig betur, en þar lá hnífurinn í Margréti Þórhildi, því fyrir rælni náðu Ikeajöfrarnir að jafna leikinn eftir hvert danskt mark.

Þótti mér gaman að heyra af leikmanni að nafni Anders And(ersen).

Þýðir þetta að hinir raunverulega íslensku ítalir munu hvergi áfram komast, því toppsæti (ná)riðilsins eru frá tekin fyrir þá frómu dani og Ikeajöfrana.

Plötukaup

Í gær keypti ég Cure-plöturnar „Boys don’t cry“ og „Pornography“. Gerði ég svo af tveimur ástæðum:

1. Ég hef ekki getað hlustað á neitt annað í rúmar þrjár vikur og vildi meira með þeim.
2. Bróður mínum áskotnaðist DVD-diskur með öllum/helstu myndböndum þeirra og mig langaði að eiga sum lögin á geisladiski.

Ég ætla að reyna að tjá mig örlítið um plötur þessar þrátt fyrir að hafa ekki náð að hlusta neitt sérstaklega vel á þær enn.

Boys don’t cry
Boys don’t cry er talsvert pönkuð plata miðað við annað sem ég hef heyrt með Cure. Platan byrjar á samnefndu lagi, sem er algjör snilld, en gerist pönkaðri strax á næsta lagi – Plastic Passion. Platan verður skemmtilegri eftir því sem á líður og endar á snilldarlaginu Three Imaginary Boys, sem raunar er titillag fyrstu plötu þeirra, en hefur, ásamt fleiri lögum þeirrar plötu, ratað einhverra hluta vegna inn á þessa. Platan er mjög skemmtileg en fyrir okkur, sem höfum lítið til samanburðar, er þetta heldur óvenjuleg hlið á þeim.

Pornography
Ég hlustaði á fyrsta lagið af Pornography – One Hundred Years – í morgun og mér leið ólýsanlega illa eftir á. Lagið var engu að síður mjög flott. Hins vegar held ég að ég neyðist til að spara þessa þar til mér líður sérstaklega illa; svo ég eyðileggi ekki góða skapið.