Ég verð að segja að mér finnst það ekkert erfitt! Það á að dæma dýraperra á grundvelli kynferðisafbrotalaga; það er nú ekki flóknara en það. Hversu erfitt getur það verið?
Month: september 2004
109655976930003777
Þetta er fyndið: Skammaður af breska þinginu fyrir að taka í höndina á Robert Mugabe, forseta Múgabíu (áður Zimbabwe). Eftir atvikið skrifaði Mugabe eftirfarandi orð á bloggið sitt: „Is it because I is black?“ Efast engin um að sú spurning verði að einni hörðustu deilu 21. aldarinnar.
109654450494961913
Ég vissa það, þetta er að verða tíska! Mér sýnist einnig að blaðamenn Fréttablaðsins lesi bloggið mitt, því þetta er fyrsta skiptið sem þeir skrifa „öxi“.
109647249557891686
Nefndin sem veitir Edduverðlaunin kallar sig Akademíu. Ef þetta er ekki hjákátlegt …
109646684697691369
Mér virðist sem „axarmaðurinn“ sé íslendingur af gamla skólanum. Þessi leikur svo sama leikinn, sjálfsagt haldandi að hann sé frumlegur. Sem hann er ekki.
Leiðinlegt hvernig blaðamenn Fréttablaðsins skrifa alltaf „exi“. Það þarf ekki að vera rétt þó það standi í orðabókinni. Það sama gildir um kvk. no. „völ“. Það er algjör óþarfi að hafa tvö sams konar orð yfir sama hlutinn í sínu hvoru kyni. Völ eða val? Ég segi val, og á sá kvölina sem á valið.
109639292191278898
Kominn heim úr Njáluferð. Hún var ágæt. Bjössi hrundi niður Stóru-Dímon. Það var fyndið.
109635904036757412
Nú, fóru viðgerðir á Alþingishúsinu fram úr kostnaðaráætlun? Aldrei hef ég áður heyrt að framkvæmdakostnaður ríkisins hafi farið fram úr áætlun (not!). Í raun og veru ætti ekki að birta svona fréttir. Þá kannski frekar ef framkvæmdir fara ekki fram úr áætlun. Það er eitthvað sem gerist aldrei.
109632679791601690
Ármann Jakobsson skrifar skemmtilegan pistil á Múrnum.
109623410942095940
Hversu margir ætli hafi lent í því að keyra út í búð og ganga heim, algjörlega búnir að gleyma bílnum? Ekki veit ég það svo gjörla, en þetta gerði ég áðan.
109622253034123481
Ekki veit ég hvurslags fólk heldur vöku fyrir nágrönnum sínum með svívirðislega hárri tónlist klukkan fjögur á næturna, og þó. Það er týpan sem býr í stigaganginum mínum. Svona framkoma er hreint óþolandi og nóg til að láta eðlilegasta fólk snappa. Ég verandi eðlilegur (eða þannig).