109411260730581933

Skyndilega finnst öllum það vera voðalega góð hugmynd að litli bróðir minn (9) fái farsíma. Ég held það sé ekki í lagi með þessa ættingja mína. Það er ekki langt síðan fólk var fyrst varað við því að börn notuðu farsíma og mér finnst að fólk eigi ekki að virða nýjustu rannsóknir að vettugi. Það er enn ekki vitað nákvæmlega hvaða áhrif símabylgjurnar geta haft á fólk og því finnst mér rangt að leyfa yngstu kynslóðum að brúka símana án umhugsunar.