109543112380706883

Mér heyrist af sænsku stórveldiskaupmönnunum að ætlast sé til að ég mæti til vinnu þessa fríhelgi mína. Gangi þeim vel að tjónka við manni sem ekki hefur sofið þrjár nætur í röð.

Nú, með nýjum ritstjóra af gamla skólanum hefur vefsíða Fréttablaðsins og DV (Draslblaðið vitleysa?) hrunið. Út með það nýja, inn með það gamla. Sérstaklega viðeigandi í ljósi þess að karlinn sá arna gott sem hangir á grafarbakkanum.

Siv Friðleifs vonar að draumur sinn um þjóðgarð sem spannar alla breidd Vatnajökuls frá norðurströnd til suðurs verði einn dag að veruleika. Mun hún sjálf hafa því valdið, að svo verður aldrei. Hvílíkur hræsnari.

109539082535669546

Ég veit ekki hvort ég hafi þetta af, þetta ætlar að verða þriðja nóttin í röð sem ég sef ekkert. Í gær náði ég ekki að sofna fyrr en undir átta um morguninn og nóttina áður náði ég ekki að sofna fyrr en upp úr fimm. Kann ég enga útskýringu á þessu þar eð ég hef einnig lítið getað sofið að degi til. Prinsíps míns vegna get ég ekki étið svefnpillur þannig að ég veit svei mér ekki hvað skal til bragðs taka.

M.ö.o.: FOOOOOOOOKK!!!