109701559280415824

Ánægjulegt er að sjá að menn kokgleypa ekki öllum þeim „staðreyndum“ sem kerfið nauðfæðir okkur á í þeim tilgangi að halda fólkinu í skefjum, mannréttindum í lágmarki og til að tryggja þjóðaröryggi. Enda veit Bibbi það manna best, að það var ég sem samdi Metropolitan Glide, en ekki Tom Waits.

Alltént virðist hann vita það betur en ég, sem hafði ekki hugmynd um að hafa komið nálægt gerð þess – hvað þá heyrt lagið áður. En svona er nú lífið og eigi er allt sem sýnist fyrr en sannleikurinn sýnst hefur.

109699453598291717

Ekki varð ég var við óöryggi eða vanlíðan, þau þrjú skipti sem ég lenti í kennaraverkfalli.

Vitanlega er ekki við öðru að búast en gyðingar taki það óstinnt upp þegar gert er gys að þeim. En það tvennt við málflutning höfundar er að athuga, að Þórshamarinn er fornt norrænt tákn sem á engan hátt tengist hakakrossinum, og að börn eru ekki mestu boðberar siðferðisvitundar. Börnum er einfaldlega drullusama hvort þau móðgi einhvern. Fyrir þeim er þetta fyndið, sama hvað einhverju ókunnugu fólki finnst um það. Einhverra hluta vegna hefur börnum alltaf þótt Hitler fyndinn – jafnvel allt fram á framhaldsskólaár. Kann ég þess fjöldamörg dæmi.

Hið sama gildir um prumpuhúmorinn alræmda.