Þessi nýja auglýsing er asnaleg, þar sem allir íþróttakapparnir hlaupa um og leika listir sýnar. Sérstaklega atriðið þar sem einhver handboltakappi brýtur sér leið framhjá sjómanni, til þess eins að hoppa fram af bryggjunni og henda boltanum út í sjó. Og hvað er verið að auglýsa? Lottó!
Day: 29. október, 2004
109906553182982120
Leiðrétting hefur borist á seinustu færslu, en í ljós kemur að Mogginn birti fréttina um horfnu atkvæðaseðlana á forsíðu blaðsins. Sjálfur studdist ég við Netmoggann, enda les ég ekki pappírsófétið, en fann hvergi neitt sem impraði jafnvel örlítið á þessu mikilvæga máli.
Þakka Elíasi fyrir þessar upplýsingar.
109904985400088973
Er ég hissa á að 60.000 utankjörfundaratkvæðaseðlar hafi horfið í Flórída í ljósi skandals síðustu kosninga og þeirrar staðreyndar að Jeb Bush er ríkisstjóri þar?
Og er ég hissa á því að Morgunblaðið minnist ekki EINU ORÐI á þetta? Svarið liggur í augum uppi.