110026468183281834

Ef einhver efaðist um að Samfylkingin væri stefnu- og höfuðlaus gýgur má draga þetta fram því til stuðnings. Hvernig væri að konungur kratanna tæki beina afstöðu í einhverju í stað þess að leika sífellt tveimur skjöldum í póstmódernískri afstöðu sinni? Ekki myndi það skaða.

Síðasta fylgiskönnun Fréttablaðsins gaf í skyn að Samfylkingin nyti mest fylgis allra flokka landsins um þessar mundir. Hefði könnunin verið marktæk (svarhlutfall var aðeins tæp 50%) segði það meira um þjóðina en flokkinn. Þá er aðeins að bíða marktækrar fylgiskannanar, en ekki mun slíks vera að vænta frá Fréttablaðinu.