110147931748459375

Unglingar eru gjarnir á að eyðileggja hluti (afsakið alhæfinguna). Það er oft að ég sé brotnar ljósaperur í ljósastaurum, veggjakrot og hvaðeina. Samt, þegar gamla Kringlan var og hét og Hard Rock hafði bíl hangandi utan á byggingunni, samt var hann látinn í friði. Skrýtið.

Ég fór ekki í skólann í dag. Vekjaraklukkan klikkaði og móður minni datt ekki í hug að vekja mig, því einhverra hluta vegna hélt hún að það væri frí í skólanum. Ekki veit ég hvaðan hún fékk þá hugmynd.

Ég held ég sé að fá hálsbólgu.