110315188996965460

Átti ágæta kaffihúsastund með Skúla og Einari. Ég er samt eitthvað svo andlega búinn á því svo ég var fremur daufur í dálkinn. Eftir á að hyggja er ekki mikill léttir í að vera búinn í prófum. Þvert á móti finnst mér eins og allt hafi skyndilega orðið fremur ómerkilegt, nú þegar ég má með góðri samvisku njóta þess. Það er eðlilegt. Það er samt ekki skemmtilegt.