Formaður Matsveinafélagsins segist ekki vera getinn af djöflinum í Fréttablaði dagsins í dag. Hvað getum við, sauðsvartur almúginn, annað gert en að taka því trúanlega? Verra er þó að vera kominn úr blóðugum endaþarmi andskotans, eins og annar hver hlutur í Myrkrahöfðingjanum.
Í Fréttablaðinu stendur einnig að nokkrir ísraelskir þingmenn hóti því að sniðganga væntanlegt ferbrúarþing verði Horst Koehler leyft að flytja framsögu á þýsku. Þeir segja það móðgun við eftirlifendur helfararinnar. Með fullri virðingu fyrir gyðingum er ég farinn að hallast að því að ísraelska þingið sé samansafn geðsjúklinga.