Ég ætla mér ekki að fullyrða neitt í þeim efnum, en áhugasamir geta skoðað þessa heimasíðu. Ég mæli með því að þið skoðið alla tenglana.
Day: 18. febrúar, 2005
Árshátíðin
Ég skemmti mér mjög vel í gær, aldrei þessu vant. Í beinu framhaldi má segja að ég var ekki sérlega upplitsdjarfur er ég vaknaði í morgun.
Þakkir fara til Bibba fyrir að nenna að taka við ölvuðu útgáfunni af mér, spjalla við hana um þjóðþrifamál og keyra hana loks heim. Þakkirnar væru meiri ef ekki væri fyrir þessa afbökun á sannleikanum.