Alið upp börnin ykkar!

Er það ekki merkilegt að um fjórðungur þeirra unglinga sem læra um nasisma og viðurkenna að hann sé viðbjóðslegur skuli vera nasistar sjálfir? Ef barnið mitt léti frá sér jafn ógeðslegar fullyrðingar og að nýbúar væru verri en annað fólk myndi ég hiklaust gefa því kjaftshögg. Ef ég ætti uppkomið barn sem léti út úr sér sömu fullyrðingar myndi ég afneita því. Nema það myndi aldrei segja neitt í þá áttina, vegna þess að ég myndi ALA UPP BARNIÐ MITT.

Kynþáttahatarar fari andskotans til. Þeir eru eina fólkið sem er óæðra og á síst allra mannréttindi skilin. Og mér er skítsama á hvaða aldri þeir eru. Snemma beygist krókurinn.

Um forvarnargildi aðvörunarmiða á neysluvörum

Hér ætla ég að birta helstu atriði rannsóknar okkar Brynjars ef einhver skyldi hafa áhuga.

Tilgáta: Varúðarmerkingar á sælgætisumbúðum, séu þær áþekkar þeim sem finna má á sígarettupökkum, hafa minni áhrif á reykingamenn en þá sem reykja ekki.

Aðferð: Við keyptum fjórar tegundir af sælgæti og tvennt af hverju. Á helminginn límdum við aðvörunarmiða áþekka þeim, sem finna má á sígarettupökkum, en með yfirfærðum boðskap gegn sælgætisáti. Hinn helmingurinn fékk að standa óáreittur. Til að hægt væri að alhæfa útfrá niðurstöðum rannsóknarinnar brugðum við á það ráð að notast við megindlegar rannsóknaraðferðir, í þessu tilviki spurningalista. Spurningalistann hönnuðum við þannig, að hver sælgætistegund kæmi fyrir tvisvar, með og án aðvörunarmiða, og fyrir hvern flokk (þá átta í heildina) var kvarði frá einum og upp í sjö. Viðmælendum var sýnd ein vara í einu, í handahófskenndri röð, og þeir beðnir að segja okkur, miðað við kvarðann, hversu vel þeim leist á sælgætisumbúðirnar, þar sem 1 táknaði mjög lítið, 4 táknaði hvorki né og 7 táknaði mjög mikið. Eftir að hver þátttakandi hafði svarað spurningalistanum spurðum við hann að endingu hvort hann reykti. Allir þátttakendur voru látnir vita um tilgang rannsóknarinnar rakleiðis eftir á.
Þátttakendur voru fullorðnir einstaklingar á aldursbilinu 18 – 80 ára, ekki yngri því miða varð við lágmarksaldur til tóbakskaupa. Reykingamenn skilgreindum við miðað við tilkomutíma fyrrnefndra aðvörunarmerkinga fyrir þremur árum, þ.e. reykingamaður verður að hafa reykt að staðaldri í að minnsta kosti þrjú ár. Engin skilyrði voru sett með reyklausa utan það, að þeir máttu ekki hafa reykt í a.m.k. hálft ár.

Niðurstöður: Ekki fannst marktækur munur á reykingamönnum og reyklausum þegar kom að sælgæti án aðvörunarmiða. Hins vegar fannst marktækur munur á hópunum hvað varðar löngun þeirra í sælgæti með aðvörunarmiðum. Reykingamönnum fannst sælgætið aðlaðandi án tillits til aðvörunarmiða, þar sem meðaleinkunnagjöf fyrir sælgæti án miða var 4,4 og 4,2 með miða, en reyklausir vildu mun síður fá sælgæti með aðvörunarmiða, þar sem meðaleinkunnagjöf þeirra fyrir sælgæti án miða var 3,7 en 2,9 með miða. Þar af leiðandi hafa aðvörunarmerkingar lítil sem engin áhrif á reykingamenn en þónokkur áhrif á þá sem reykja ekki.

Tilgátan er því studd.

Sönn saga

Klukkan er þrjú. Merkilegasti og mikilvægasti bloggari Íslands (st. MMBÍ) stendur við upplýsingaborð í IKEA. Hann er hugsi, því hann er ekki enn farinn í kaffi. Það er skrýtið. Skyndilega gellur við: Hey!

MMBÍ (kemur niður úr skýjunum): Já?
Kúnni: Hvað kostar þetta?
MMBÍ: Það stendur á miðanum.
Kúnni: Hvaða miða?
MMBÍ: Þessum gula.
Kúnni: …
MMBÍ: Hann hangir á stólnum.
Kúnni (lítur á miðann, muldrar): Já, já! Tek ég bara þennan?
MMBÍ: Nei, hann er í sjálfsafgreiðslu.
Kúnni: Hvað er það?
MMBÍ: Hún er inni á lager. Þar eru númeraðir gangar og hillur merktar bókstöfum. Það stendur á miðanum …
Kúnni (pirraður, grípur frammí): Og hvar finn ég þá þetta?
MMBÍ: Það stendur á miðanum.
Kúnni (lítur á miðann, les upp tölu og bókstaf): Og hvernig finn ég þetta?
MMBÍ (myrðir hann í huganum): Númerið er gangurinn sem hillan er í og bókstafurinn er hillan sem stóllinn er geymdur á.
Kúnni: Ég skil þetta ekki.

Klukkan er tæplega kortér yfir þrjú. Merkilegasti og mikilvægasti bloggari Íslands stendur við upplýsingaborð í IKEA, með hárið í höndunum. Hann er hugsi, því hann hefir komist að því, að einfaldleikinn er dauðadæmdur í höndum Íslendinga. Og hvar er stelpan, sem átti að leysa hann af? Veit hún ekki að hann er Merkilegasti og mikilvægasti bloggari Íslands?

Skyndilega gellur við: Ert þú að vinna hérna?

MMBÍ (snýr sér við, í huganum: Nei, og það stendur hvorki IKEA á skyrtunni minni né nafnspjaldinu): Jú *andvarp*, ætli það ekki …

Endir.