Lítil athugun

Eine Abhandlung auf den menschlichen Körperfunktionen:
„Wann Mann nicht essen kann, so wird Mann hungrig. Wann Mann nicht schlafen kann, so wird Mann müde, oder so hat der Arzt gesagt“.

Markmiðið með þessu er að sýna fram á tvennt: Annars vegar að einföldustu hlutir hljóma eins og hin merkustu fræði á þýsku. Hins vegar að þýska er óendanlega töff.

Ég lít svo á að þetta sé óhrekjandi.

Eftirmálar rannsóknarinnar

Við Brynjar fórum í dag og létum binda inn skýrsluna okkar, Um forvarnargildi aðvörunarmiða á neysluvörum: Rannsókn á klassískri skilyrðingu. Hún hefur verið valin til að prýða heimasíðu skólans sem kynningarefni fyrir hugsanlega nýnema. Einnig hefur okkur hlotnast sá heiður að eintak af skýrslunni verður skráð í Gegni og geymt á bókasafni skólans. Þess vegna fannst okkur um að gera að hafa hana svolítið fína.

Ég held við höfum ærna ástæðu til að vera ánægðir með okkar hlut. Og það erum við.

Ef það vafðist fyrir einhverjum …

Það er æðislegt að fá pakka sendan heim til sín, vitandi að það er bók í honum. Verra er með að opna pakkann, því hann er svo afspyrnu fallegur að helst vildi ég komast hjá því að opna hann, a.m.k. í bráð. Það er jú ekki á hverjum degi sem ég fæ svona fínar bækur í póstinum (þetta ku vera alþýðurit frá miðri 19. öld, en ekki man ég titil þess). Kannski ég ætti að bíða örlítið með að opna hann. Bara örlítið. Já, svona er ég nú klikkaður.

Lof sé ömmu minni fyrir gjafmildi sína og hjálpsemi við að viðhalda sérviskum mínum (lesist bókaperri).

Jæa, nú opna ég hann. Vonandi að hún sé í heilu lagi …