Lof kýrinnar

Guð minn góður hvað ég samdi hryllilegt ljóð í tilefni af upplestrinum á fimmtudaginn! Það hljómar eins og eitthvað eftir Guðna Ágústs og gæti heitið Lof kýrinnar, eða einhverju álíka nafni. Í augnablikinu heitir það þó Beljan, sem hentar tilefninu ágætlega. En ég held ég hendi þessu frekar og byrji upp á nýtt. Þá er betur heima setið en af stað farið, eins og þúsund manns hafa sagt áður.

Nýustu fregnir æfi minnar

Daníel Guðmundur Hjálmtýsson finnur að stafsetningu minni á orðinu skrímsli, en ég vandi mig fyrir löngu á að skrifa það með ý. Þá skrifa ég einnig skrítin og biskup með tvöföldu. Þannig hef ég lengi gert það og þannig mun ég hafa það áfram. Enda eru skrýtin byskupaskrýmsli langtum fegurri en skrítin biskupaskrímsli.

Ef menn eru sjokkeraðir á þessu má benda á aðrar stafsetningar sem ég er að hugsa um að taka upp: Æfi, altaf og nýast. Þaraðauki er ég að hugsa umað tengja altaf saman orðasambönd einsog þaraðauki, umað og einsog, þaðsem eftir lifir æfinnar.

Í öðrum fréttum hefur ármaður vor, Hjördís Alda, beðið okkur úr Listafjelaginu að flytja nokkur kvæði í tilefni af opnun vefsíðu skólafélagsins á fimmtudaginn. Ég hef þegar fundið fimm kvæði, sem tengja má við atburðinn með nokkrum útúrsnúningum. Í ofanálag fleygi ég kannski einum Tómasi (hvern ég keypti áðan) og einu sérortu með í grautinn. Enn er þó tvísýnt um hvort hin þrjú okkar úr Listafjelaginu fáist til að lesa nokkuð.

Í ljós kemur á allra næstu dögum hvort ég hljóti sæti í skólaráði. Það þætti mér gott. Ég hef nefnilega ýmislegt að athuga við stefnu skólans í ýmsum málum. Til dæmis mál viðkomandi jafningjafræðslu.

Ármann slengir fram sögninni að súrmúlera. Það er skemmtilegt orð. Að minnsta kosti ef maður er mikill súrmúler.

Tilvísunarvandræði

Það fer óneitanlega í taugarnar á mér að fólk geti fundið þessa forsíðu DV á leitarvél undir slóðinni í síðuna mína. Ég hef aldrei birt þessa forsíðumynd hér né vísað til hennar (fyrr en nú) og þekki hvorki til þessa máls né hlutaðeigandi. Ég veit ekki hvers vegna þetta gerist, en mér finnst það óþægilegt. Ekki vil ég að fólk fari að tengja mig við þennan óverknað.