Ef þetta verður vinsælt … Þetta verður sko hreint ekki vinsælt.
Day: 5. desember, 2005
Skilaboð til stjórnvalda
Eftirfarandi hefur verið stolið af mér:
Hlutur minn í Landsbankanum,
hlutur minn í Búnaðarbankanum,
hlutur minn í Landssímanum.
Ég vil fá þessa hluti aftur eða andvirði þeirra.
Eftirfarandi á mögulega að selja úr eigu minni:
Hlutur minn í Landsvirkjun,
hlutur minn í Orkuveitunni,
hlutur minn í heilbrigðiskerfinu,
hlutur minn í Ríkisútvarpinu.
Ég ætlast til að fá þessa hluti greidda verði þeir seldir.