Næsta þriðjudagskvöld, strax eftir Gettu betur, verður haldin bókmenntahátíð í Skálholti. Þar munu nokkur valinkunn skáld lesa úr verkum sínum hlustendum til yndis og unaðsauka og efla um leið menningarvitund vora. Hefst hátíðin kl 20:30. Þau sem fram koma eru:
Andri Snær Magnason
Kristín Þóra Pétursdóttir
Aldís Guðbrandsdóttir
Gerður Kristný Guðjónsdóttir
Arngrímur Vídalín Stefánsson
Kári Páll Óskarsson
Halldór Marteinsson
Hallgrímur Helgason
Þetta gekk vel, eiginlega vonum framar. Dóri og Kári voru góðir að vanda og Andri Snær fór á kostum. Það hríslaðist um mig vanlíðanin undir lestri Gerðar Kristnýar og þær Aldís og Kristín Þóra komu reglulega á óvart. Hallgrím hafði ég heyrt áður og hann var engu síðri nú en þá. Ætli ég verði ekki að minnast aðeins á sjálfan mig í leiðinni, mér gekk sæmilega. Ég sé raunar að tvö ljóðanna féllu ekki alveg í kramið. Þau verða ekki notuð aftur, hvort eð er illa hugsuð. Ég veit raunar ekki alveg hvað mér á að finnast um kvæðin mín lengur, hef fengið þannig gagnrýni á bókina mína að ég er hættur við að reyna að koma henni á framfæri í núverandi mynd. Eða eins og einhver sagði, ég á eftir að taka út vissan þroska, þá kannski kemur þetta. Ætli galgopinn þurfi ekki að kyngja ráðleggingum sér eldri og viturri manna.
Nei, nei, viltu ekki frekar halda ótrauður áfram?
Ég held áfram að yrkja, en ég sé það sjálfur að bókin er ekkert útgáfumaterial. Þroskinn sem um ræðir fæst líka aðeins með því að halda áfram. Þetta kemur, þótt það komi kannski ekki á þessu ári eins og stefnt var að.
Þú áttir eftir að senda mér bókina þína, ég er viss um að hún er góðra gjalda verð.
Ég sat nú undir ljóðunum þínum þetta kveld og hafði bara mjög gaman af! Veit ekki alveg hvaða ljóð þetta voru sem ekki fellu í kramið, er eiginlega alveg sama því þú komst mér svo skemmtilega á óvart (og þá verður náttúrulega að hafa það í huga að ég sá þig þarna í fyrsta skiptið svo ég viti). Ég held ég myndi hiklaust staldra við í bókabúð og hugsa mig um ef ég sæi bók merkta þér í einni hillunni og finnst biðin eftir þroska einkar óspennandi og tilgangslaus.
Ég vildi að svona uppákomur hefðu verið haldnar meðan ég var í skólanum
Vá, ég bara veit ekki hvað ég get sagt, nema kærar þakkir. Þau ljóð sem „féllu ekki í kramið“ veit ég ekkert hvort hafi fallið í kramið eða ekki, ég bara segi svona því ég er sjálfur ósáttur við þau. Það er kannski rétt hjá þér að biðin eftir þroska sé tilgangslaus. Ég er í það minnsta fílefldur núna, bara að ég vissi hver veitir mér svo fallega umsögn.
Do it man.. Ekki hika, ég elska það sem ég hef séð af bókinni þinni!
Vá, enn batnar það! Ég er ansi hræddur um að þessu þurfi ég að taka sem skipun. 🙂