Í minningunni

Eru hlutirnir nokkru sinni eins skemmtilegir eins og í minningunni? Fær mann til að spá. Drífum okkur að ljúka þessu af svo það geti orðið að minningu! Nei, það virkar víst ekki þannig. Ótrúlegt að þurfa að sitja gegnum heila ævi til að fá þessar örfáu sekúndur af minningum að launum. Arðrán gleðinnar. Nei, mér er ekki alvara.

En á morgun kaupi ég mér föt. Það þarf ekki meira til að gera daginn góðan. Varla mun ég þó lengi eiga minninguna af kaupunum. Minnið filterar út svoleiðis hismi. Það snýst heldur ekki um kaupin, heldur það sem keypt er og hversu mikið er hægt að nota það sama dag. Jafnvel maður fari út á meðal fólks í nýju fötunum án þess að eiga nokkurt erindi. Það er undarleg vellíðan sem fylgir nýjum fötum. Viku síðar eru þau svo orðin áþekk þeim gömlu. Njóttu meðan þú getur. Já, ég get skilið fatafíkla. Sjálfur er ég á mörkunum.