Ég er í skýjunum! Þetta var frábært, æðislegt. Húsið var troðfullt, fjölmennt jafnt sem góðmennt, Ingibjörg Haralds var vá!
Eitt finnst mér um eigin flutning, en það er að þótt ljóð séu og eigi að vera fullkomlega opin gagnvart túlkun, þá skildist það líklega þannig að öll ljóðin mín fjölluðu um ástina. Svo var ekki. En auðvitað eru þau opin gagnvart túlkun, sem áður segir.
En já, ég er í skýjunum. Gaaapandi sæla.
Til hamingju með frábæra framistöðu! 😀
Þetta var gordjöss í alla staði. Til hammó!:D
Takk kærlega fyrir! 🙂
Var staðráðinn í að mæta, en komst svo ekki. Kem næst (þú ert ekkert að fara að hætta, er það?).
Ekki nema til komi þjóðaratkvæðagreiðsla (jafnvel enn síður ef svo færi …). Vona að þú komist næst!
Ekki skrýtið að þú sért í skýjunum eftir svona fína frammistöðu! Það verður gaman að fylgjast með þér á skáldabrautinni.
Þakka þér kærlega fyrir það, og enn betri þakkir fyrir að þekkjast boðið. Ég set mig svo í samband í nálægri framtíð upp á að nálgast hjá þér bækurnar.