Fallegur dagur

Gott er á góðum degi að taka rúnt niður á bókasafn og krækja sér í einhver rit til að glugga í með tvöföldum espresso á einhverju útikaffihúsinu (enda dugir reykingamönnum skammt að sitja inni). Á svona degi er líka viðbúið að mörgum kunnuglegum andlitum bregði fyrir í bænum og sú óviðfelldna hundraðogeinntilfinning lætur á sér kræla að miðbærinn sé í raun framlenging á bakgarðinum heima (fyrir sex árum sá ég Geir Ólafs rölta um bæinn að morgni til á slopp og inniskóm, leiki það enginn eftir).

Við tjörnina létu mávarnir loftárásirnar dynja á höndunum sem fóðruðu þá og þegar ég gekk Bárugötuna heim á leið hallaði sér útigangsmannslegur náungi með trosnaða bók yfir garðvegg og leiðbeindi ábúanda hvernig ætti að vitna í hann sjálfan í heimildaskrá, meðan hinn síðarnefndi rakaði garðinn sinn.

Í lok mánaðar er útlit fyrir að Vesturbæjardraumurinn sé úti um sinn en við taki annarskonar tímabil þarsem ég verð þó líklega með aðstöðu í bænum undir hverskyns hringlumhrangl. Þá er viðbúið að ég muni eyða langtum meiri tíma en eðlilegt gæti talist í bænum til að kreista hið mesta úr blóðmjólkuðum steininum, enda þótt því fari fjarri að miðbærinn geti alltaf talist eitthvað sérlega kræsilegur. Það er fyrst og fremst á dögum sem þessum, og haustin í Vesturbænum geta verið ansi köld þegar blæs eftir endilangri Hringbrautinni.

En við sjáum hvað setur.

3 thoughts on “Fallegur dagur”

  1. Ég sá mömmu hans hún var bekkjasystir mömmu í grunnskóla.Frábært að kíkja á bókasafnið.Eitt rosalega fyndið troddi hann bókinni í bakpokann.Bíddu ertu að fara burt úr vesturbænum æjj ég græt. Núna er mávar stórhættulegir hef ég hert þeir borði aðra fugla eða eitthvað svoleðis.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *