Ég er svo gapandi bit. Hafið þið tekið eftir því að Skerjafjörðurinn er eins og Ingólfur Arnarson í laginu? Með réttu hugarfari má einnig sjá úr þessu bergrisann sem gætti Suðurlands í Heimskringlu. Þar er þá landvætturin komin. Skyldi Vopnafjörður þá vera í laginu eins og dreki? Svari mér fróðari menn, ég hef ekki kannað málið …
„En hvað er það sem verndar viðkomu landans? Vitið þér hvað það er? Mér er það hulið.“ – Megas.
Stolið via Tölvuóða tónskáldið.
Þetta er mjög skemmtilegt!
Ég get ekki betur séð en að Davíð Oddsson búi á forhúðinni, að Fáfnisnesi 12.
Nema skítapakkið búi að Skildingatanga.
Þetta er eins og maður að gramsa í ruslatunnu, hefur mér alltaf fundist. Ekki er það nú mjög classy.
Nau! hehe, ég sé hvoru tvegga út úr kortinu án trafala!
-Ætli þetta sé útpælt? Svona gatnalega séð virkar þetta voða ópraktísk uppsetning svo það má vel vera.