Já, litlu gleðst hann yfir

Það lítur út fyrir að auglýsingin mín hafi virkað, þökk sé góðu fólki. Aldrei að segja aldrei. Ég kannski auglýsi eftir lítið notuðum, ódýrum saunaklefa næst – sem hengja má utan á húsið mitt með aðgengi úr svefnherberginu mér að kostnaðarlausu. Og koma svo …

Í öðrum fréttum eru prófin búin, við tekur vinna út desember með óvæntum glaðningi í formi nýrra kjarasamninga, sem reyndar aðeins rétt dekka hallann sem er farinn að myndast á heimilisbókhaldinu. Ef þeir dekka hann yfirleitt.

Vinna á eftir, svo jólaglögg. Húrra!

One thought on “Já, litlu gleðst hann yfir”

  1. Ég á því miður ekki saunaklefa handa þér,en nennirðu að hringja í mig/smsa næst þegar þú ert að vinna? Þarf aðeins að nýta mér samband mitt við bókavarðarfolann sem þú ert..

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *