
Súkkulaðið hrært svo það kólni.

Því var líka velt um á marmaraplötu.

Það var dálítið subbulegt!

Allir búnir að skreyta plöturnar sínar.

Sæl systkini með plöturnar sínar tilbúnar.

Myndum var varpað á nokkur húsanna, þarna eru kakóbaunir.

Sölufólk að undirbúa sig fyrir framan bakaríið í Wanne.

Bóndinn með fínu Kastelruth svuntuna sína - takið eftir bjórflöskunum ofan á skápunum til vinstri!

Beelzebub hinn svarti fylgdarsveinn heilags Nikulásar kíkti á jólamarkaðinn í Honau - hann útdeilir fyrir sveinka og var með súkkulaði í þetta skiptið.

Svo var hægt að fá svona líka ljómandi andlitsmálningu, það voru ekki allir jafn sáttir við að þvo sér í framan fyrir háttinn!
Gaman að fylgjast með ykkur. Fæ nostalgíukast – húsið okkar var skrautlega upplýst á súkkulaðihátíðinni í fyrra. Svo langar mig á jólamarkaðinn í Tübingen um næstu helgi – og líka þann í Rottenburg – og alla aðventutónleikana í kirkjunum og og…
Njótið tímans. Bestu kveðjur úr skammdeginu Akureyri – þar sem allt er fullt af ljósum. Ein skýringin á færri ljósum á ykkar slóðum er að það þykir ekki mjög umhverfisvænt að vera með óhóflegar lýsingar.
Já, ykkar er saknað hér líka, yfirleitt minnst á íbúðina ykkar þegar við erum niðri í bæ, sem var fallegur á súkkulaðihátíðinni og nú bíðum við spennt eftir jólamarkaðnum um næstu helgi
Hafið það gott í skammdeginu og ljósunum, við erum búin að setja okkar út í glugga