Heimavinnandi húsmóðir

Nokkrar myndir
Systur í nýprjónuðum kjólum og ótrúlega morgunhress snáði.

Þegar hretið kom í vikunni notaði frúin tækifærið og tók svolítið af myndum af gestunum sem hafa heimsótt okkur reglulega í vetur.  Myndirnar eru að vísu allar teknar í gegnum gluggann og því ekki neitt ofboðslega skarpar.

Nokkrar tegundir fugla hafa heimsótt okkur og þekkjum við ekki margar þeirra.

Þessi með rauða brjóstið er frekar styggur.

Svona var pallurinn okkar á fimmtudagsmorguninn var, 11. mars.

Og svona var útlitið í morgun, sunnudaginn 14. mars.

Systur við rótarflækju trés sem féll greinilega nýlega.  Þetta var í skóginum ofan við Bebenhausen.

Hér sést líka í litla hríslu, ofan við höfuðið á þeirri sveimhuga, sem var svo óheppin að fylgja með stóra trénu þegar það féll.

Þakkir
fá allir þeir sem líta hér við og fylgjast með okkur, það er greinilegt að markmiðið með bloggi frúarinnar næst, vinir og vandmenn geta fylgst með daglegu lífi okkar hér í Tübingen.

Þessi vika hefur liðið hratt eins og tíminn hér almennt, lítið merkilegt var aðhafst í vikunni, ein tönn datt hjá þeirri sveimhuga, þar með hafa 10 tennur dottið hjá henni.  Hún skrapp líka í heimsókn til bekkjarsystur sinnar á þriðjudaginn og hafði svo gaman af að ekki tókst að koma heim á réttum tíma.

Sú snögga lá úti í snjónum um daginn og sleði var dreginn yfir andlitið á henni, fékk hún að launum vísi að glóðurauga sem er óðum að hverfa.   Hún svarar móður sinni oft þegar hún er spurð út í heimaverkefni: “mamma, ég er í frysta bekk, þá er aldrei mikið heimanám!”

Sá skapmikli er sáttur í leikskólanum, svona flesta daga. Hann á góðan vin þar og nú er verið að föndra fyrir páskana.  Hann er farinn að tala heilmikið á þýsku og skilur mjög margt.

Frúin sótti tíma í gegnum Skype í vikunni og gekk það vel – bóndinn fór á  meðan með krakkana í stórmarkaður og kom frústreraður heim, stórmarkaðir geta verið erfiðir!

Á föstudaginn voru fimleikar, sund og lokakvöldið í “Unser Star für Oslo” og Lena Meyer-Landrut var valin með lagið Satellite, hún er sjarmatröll og við sáum eiginlega í fyrsta þættinum að hún hlyti að fara til Osloar.

Á laugardaginn var hangið heima í rólegheitum allan daginn, eftir taco kvöldverð horfðum við á Mary Poppins.  Sú sveimhuga segir að myndir um skemmtilegar barnapíur sem kenna foreldrum að þykja vænt um börnin sín séu uppáhalds myndirnar sínar.

Í dag, sunnudag, skruppum við yfir til Bebenhausen og gengum um skóginn, sáum nokkur tré sem höfðu fallið í síðasta roki og gáfum villisvínunum gömul hamborgarabrauð.

Við vonum að vorið sé á næsta leiti, spáin er upp á ríflega tíu stig svo til daglega næstu tvær vikurnar, reiknum bara að það standist

Um næstu helgi skreppur bóndinn til Amsterdam – alla vega benda líkur til þess.

Góðar stundir

Vorhretsmyndir
Listamenn við verkin sín sem voru unnin á þriðjudegi á meðan sú sveimhuga var í Tü-kiss íþróttatíma.

Trén farin að bruma.

Á leikvelli í vesturbænum.

Yfirkrúttið Pétur Ben.

Snjókast.

Gaman að moka snjó!

Vorhret
Passlega var nú búið að hrósa því að hér væri komið vor!

Fyrrihluta vikunnar og fram í hana miðja var sá skapmikli heima vegna hálsbólgu og hitavellu á meðan systur hans stunduðu skólann.  Því var lítið gert annað en að föndra og dúllast inni við, nema hvað systur fóru út að leika á línuskautum á miðvikudag á meðan frúin kenndi einni kínverskri að prjóna húfu.

Einföld uppskrift af snúðum hvarf um kaffileitið þann daginn þegar 5 stúlkur komu inn eftir mikið puð útivið.

Á fimmtudag skruppum við með Ameríkönunum á leikvöll í vesturbænum sem var mjög skemmtilegur, á leiðinni heim þaðan versluðum við, komum rétt heim til að elda og spjalla við barnapíuna þar sem frúin og bóndinn voru á leið út á lífið!

Ferðinni var heitið í Sudhaus, hér sunnan við Tübingen, með krúttunum frá Holtzgerlingen – fyrrverandi nágrannanum og mömmu hennar.  Pétur Ben var með ofurkrúttlega tónleika í Sudhaus og heillaði alla upp úr skónum með frábærum gítarleik, stórgóðum söng og almennum krúttlegheitum.  Sérstaklega þegar hann svaraði tryggingasölukonu í miðju “Billy Jean” og stillti svo gítarinn sinn inni í “I’ll be here”.  Algjört yfirkrútt!

Á föstudag voru fimleikar og sund og svo kvöldstund með ARD þar sem verið er að velja “Unser star für Oslo” – sem sagt söngvarann/-konuna sem fer til Oslóar í Evróvision keppnina.

Á laugardaginn vöknuðum við svo við alhvíta jörð!  Það snjóaði allan daginn og var eiginlega hálfgerður skafrenningur um tíma.  Ameríkanarnir komu í kaffi – athöfn sem þeim var algjörlega ókunn áður en þau komu hingað til Þýskalands!

Í dag, sunnudag, fóru krakkarnir svolítið út að leika í snjónum, annars hefur verið föndrað örlítið, bóndinn blés tvö egg fyrir þann skapmikla sem þarf að taka þau með í leikskólann og við bara tekið því rólega.

Vorhretið á að standa í tvær vikur eða svo – frost og snjór í kortum næstu dagana, svo einhver bið verður á frekari vorkomu.

Fyrir forvitnissakir þætti frúnni gaman ef lesendur skildu eftir stutt skilaboð í athugasemdakerfinu hér fyrir neðan – langar að vita hverjir kíkja við

Vormyndir
Hvítt blóm við göngustíginn á leiðinni í leikskólann.

Fleiri blóm.

Snúsnú á pallinum 27. febrúar!

Brekkan er fín til að renna sér niður á línuskautum eða þríhjóli!

Minnisvarði um fólk sem tekið var af stofnunum og flutt þangað sem það var myrt á árunum 1940-1941, einn farþeganna spurði einu sinni "Hvert farið þið með okkur?"

Minnisvarðinn er eftirlíking þeirra bíla sem fluttu fólkið, þetta er farandsýning og er stödd í Stuttgart þetta árið.

Snemmkomið vor
Vorið kom á mánudagsmorguninn!

Þá var allt í einu allur snjór svo að segja farinn, nema þykkustu klakabunkarnir, hitinn kominn yfir frostmark – líka á nóttunni, fuglar farnir að syngja og vorgosar að stingast upp.

Skólinn byrjaði aftur og voru allir merkilega sáttir við hversdaginn, skólasund og leikfimi hjá yngri krökkunum.

Á þriðjudeginum var allt hefðbundið, myndir teknar af vorblómum, leikfimi hjá þeirri sveimhuga, hlýtt úti og grasið farið að grænka.

Á miðvikudaginn skruppum við til fyrrverandi nágrannans í smá heimsókn, alltaf jafn gott og notalegt að koma þangað.

Á fimmtudaginn fórum við í heimsókn til vina þess skapmikla frá leikskólanum, það eru systkini á deildinni hans, ríflega 3ja og 5 ára – það var mjög gaman að hitta þau og ætlum við að bjóða þeim hingað heim þegar fer að vora meira.  Svo átti að vera skóli hjá frúnni en tíminn féll niður vegna veikinda.

Á föstudag voru fimleikar hjá systrum og sund hjá fjölskyldunni áður en lagst var fyrir framan sjónvarpið og horft á Dumbo.

Á laugardag var hangsað fram eftir degi, hjólin sótt úr geymslunni, krakkar léku sér í snúsnú, á línuskautum og hjólum, úti í sandkassa og nutu lífsins.  Sú sveimhuga var á því að það væri nógu heitt fyrir stuttermabol – foreldrarnir voru ekki alveg sammála því, þó hitinn væri 13 stig – það er þó enn febrúar!

Á sunnudegi skruppum við til Stuttgart upp úr hádegi og fórum á Landsmuseum Würtemberg þar sem við sáum sýningu frá Sýrlandi hinu forna ásamt með vinnufélögum bóndans.  Það var mjög skemmtileg sýning og vel sett upp.  Það er rok þennan sunnudaginn, sennilega teljandi á fingrum annarrar handar sem veðrið hefur verið svona frá því við komum hingað.

Það gleymdist í síðustu tveimur bloggfærslum að geta þess að föstudagskvöldið 12. febrúar var flutt viðtal í barnaþættinum Leynifélagið hjá Rás 1 við systur tvær búsettar í Þýskalandi, þeirra er oft getið í þessu bloggi.  Þáttinn má enn hlusta á inni á heimasíðu RÚV undir barnaefni og svo Leynifélagið.

Systkinin eru öll farin að tala svo mikla þýsku að innfæddir eru gáttaðir, það kjaftar á þeim hver tuska við öll tækifæri.  Allir eru glaðir og sáttir og una vel við sitt hér á bæ.

Okkur hjónum miðar nokkuð í verkefnavinnunni – nóg eftir að gera og nægur tími til þess.

Gestamyndir
Búið að kveikja bálið og þrammað í kringum það.

Kíkt á ljósmyndarann.

Nornin komin á bálið.

Okkur fannst skrítið að sjá Gára og Dísarfugla úti í svona kulda, en þeir virtust hafa það ágætt í Wilhelma.

Sú snögga fékk að halda á slöngu.

Og sú sveimhuga líka - sá skapmikli hafði ekki áhuga á því!

Górilla Claudia hjá mömmu sinni, hún fæddist í janúar.

Kvöldverður á Wurstküche.

Fylgst með grísum stutt frá Bebenhausen.

Bæði villtum ...

og siðuðum?

Síðasti sameiginlegi morgunverðurinn í þessari heimsókn.

Tómlegt kot
Þá eru fyrstu gestir frá Íslandi þetta árið komin og farin – alltaf er nú hálf tómlegt í kotinu þegar góðir gestir hverfa heim á leið.

Á mánudaginn var sú snögga lasin, fékk hita í kjölfar gubbunnar á sunnudag og lá í bóli frúar allan daginn og vildi fá að vera þar í friði.  Afinn, frúin og hressu börnin fóru út í brekku og skemmtu sér frábærlega, fyrir utan eitt smávægilegt sleðaslys.  Frúin skrapp með afa og ömmu til Reutlingen í smá verslunarferð eftir að bóndinn kom heim.

Á þriðjudag var stúlkan hressari og vildi fá að fara í föt, eitthvað var dúllast heimavið, afinn og frúin skruppu í göngutúr um Wanne hverfið og um kvöldmatarleitið fór hersingin, fyrir utan frú og þá snöggu, í franska hverfið þar sem nornin var brennd!  Var samkoman hálf skuggaleg og fámenn, en ákaflega skemmtileg.

Á miðvikudag var loksins eitthvað gert og við skruppum til Stuttgart í Wilhelma dýragarðinn, þar var gaman að vanda og sá skapmikli þrammaði sjálfur um allan garðinn, allan daginn.  Nesti var með í för og etið inni hjá fiðrildunum, þar var hlýtt og gott.  Litla górillan Claudia var algjört krútt eins og nafnan.    Við tókum lestina fram og til baka og nýttu sér það sumir á heimleiðinni að þurfa ekki að keyra og dormuðu.

Á fimmtudag röltum við yfir í Waldhausen Ost á leikvöll með skemmtilegu tré – gott að klifra þar, tókum svo strætó heim, þar sem sú sveimhuga var á leið í afmæli.  Eftir að bóndinn kom heim var farið með afa og ömmu í blómabúðaferð þar sem laukar voru keyptir.  Ferðin sú hófst að vísu á því að frúin skellti í lás á eftir sér – án þess að vera með nokkra lykla eða síma, þurfti því að bíða eftir bóndanum til að komast í bíllyklana!

Á föstudag röltum við á listasafnið hér í Wanne og þaðan með strætó niður í bæ að skoða minnismerki um Silcher á Neckar eyjunni, það fór að hellirigna þegar við komum út af safninu og ringdi fram eftir kvöldi.  Við borðuðum Schwäbískt á Wurstküche – allir hálf kaldir og rakir.  Fullorðna fólkið spilaði svo örlítið þegar heim var komið.

Á laugardag gengum við yfir til Bebenhausen og kíktum á klaustrið og villisvín, bóndinn og afinn gengu heim en hin tóku strætó – sá skapmikli búinn að ganga sjálfur í nokkra klukkutíma!  Eftir Maultaschen og kartöfflusalat spilaði fullorðna fólkið á meðan krakkar horfðu á sjónvarpið.

Í morgun var vaknað snemma, enda kveðjudagur – afinn og amman tóku lestina um 9 í morgun og síðan hefur lítið verið gert!  Hversdagurinn tekur við á morgun, skóli, leikskóli og verkefnavinna – framundan er 5 vikna törn í mastersverkefnum hjónanna – þá koma páskar, París og fleiri gestir!  Alltaf nóg að gera.

Fleiri “Fasnet” myndir
Sofnað á snjóþotu á heimleið frá því að fylgja þeirri sveimhuga í skólasund.

Á skautum fyrir viku síðan.

Sú sveimhuga í halarófu á svellinu.

Og sú snögga líka.

Herbergisveggurinn skreyttur.

Lúxus hádegisverður, pasta snætt upp úr pottinum!

Ljónið ógurlega sem fór í leikskólann.

Prinsessa og indíánastúlka á leið í skólann.

Allir úti að borða á Bella Roma.

Á leið í stóru brekkuna þar sem næstum því allir renndu sér nokkrar ferðir.

Ein af sætu stelpunum í Rottenburg!

Geit að gefa þeim skapmikla gott.

Kattagengið.

Frúin keypti litla grímu eins og þessir vínandar voru með.

Þessi trúður átti í mesta basli með fararskjótann, hafði hreinlega ekkert vald á honum!

Í þessum hópi voru örugglega yfir 100 einstaklingar!

Frúin búin að setja grímuna upp - á leið heim í lestinni.

Amma og afi í heimsókn
Vikan hefur liðið hratt – hér var “fasnet” stemmning meiri hluta vikunnar.

Mánudagur og þriðjudagur voru hefðbundnir með leikskóla, skóla og leikfimitímum – og talið niður í gesti.

Á miðvikudag var karnival hjá þeim skapmikla, hann fór sem ljón og skemmti sér konunglega.

Á fimmtudag fóru sá skapmikli og frúin að sækja ömmu og afa til Frankfurt í snjókomu – sem var algjörlega vanhugsuð góðvild! Vegna snjókomu tók það allan daginn að keyra fram og til baka og við vorum ekki komin heim fyrr en um 8 um kvöldið!  Ef frúin hefði leyft gestunum að taka lestina hefðu þau líklegast komið heim löngu fyrr!  Snjókoma gerir umferðina hér ekki mjög hraðvirka!

Systur fóru til augnlæknis á meðan amma og afi voru sótt, sú sveimhuga þarf að koma aftur í apríl og fær vonandi gleraugu þá, en sú snögga er með fullkomna sjón.

Á föstudag var “Fasnet” í skólanum, sú sveimhuga fór sem indíánastúlka og sú snögga sem austurlensk prinsessa – þær skemmtu sér frábærlega , við sóttum þær að skóla loknum og skoðuðum kennslustofurnar þeirra í leiðinni.  Um kvöldið fórum við út að borða á Bella Roma.

Á laugardag komu fyrrverandi nágranninn og fjölskylda, við fórum í stóru brekkuna og þau borðuðu síðan kvöldmat með okkur.

Á sunnudag skruppum við til Rottenburg á “Umzaug” með vinnufélögum bóndans.  Það var ofsalega gaman og afraksturinn dágóður. Dagurinn endaði svo á því að sú snögga fékk gubbuna en sem betur fer ekki fyrr en við komum heim – hún missti því að mestu af því að borða slátrið sem var í kvöldmat.

Viðbót sem gleymdist:

Á heimleiðinni frá flugvellinum stoppuðum við í vegasjoppu til að borða, þar var fyrir rúta af indverskum ungmennum á þrítugsaldri.  Þau kolféllu fyrir þeim skapmikla, komu og báðu um að fá að taka myndir af honum, fá að halda á honum, struku á honum hár og kinnar, kysstu hann og knúsuðu og rifust um að halda á honum fyrir myndatökur!  Þegar fólkið fór gengu svo flestir framhjá borðinu okkar til að fá vink og bros – og jafnvel eina mynd að lokum.