Kermit

10. apríl 2008

Oh happy day

Flokkað undir Almennt — dagger @ 14:45

Í gær var bakið mun skárra… ó yndislegu sterasprautur! Ég gat í fyrrakvöld rétt úr mér og labbað og verð að passa mig að gera ekki ALLT sem mig langar að gera - því ekki vil ég aftur verða Bogbjartur. Bestu fréttirnar af öllum eru þær að í gær fórum við suður með Guðmund Hrafnkel til hjartalæknis og allt kom alveg frábærlega út úr því  - einstaklega fullkomið hjarta. Við vorum búin að bíða í þrjár vikur eftir þessum tíma því það heyrðist aukahljóð í hjartanu hans - og heyrist reyndar enn- en það er algjörlega saklaust :) Ég er auðvitað ánægðust í öllum heiminum með þessar niðurstöður. Nú sefur umræddur Hrafnkell úti í vagni en er af einhverjum ástæðum alltaf að rumska… ég hef samt áralanga reynslu af að tryggja góðan svefn í vagni!

barnavagn.jpg

(Í vagninum er Hvítibangsi Bergþór Kristjánsson, “sonur” Öddu ;))

• • •

3 ummæli »

  1. Sko, þetta sagði ég. En farðu bara varlega með þig. Vonandi sjáumst við aftur fljótlega.

    Ummæli ritaði Óli Gneisti — 10. apríl 2008 @ 15:20
  2. Gott að skoðunin leiddi í ljós að hljóðið sé saklaust. Hafið það sem allra best mæðginin :)

    Ummæli ritaði Albert — 10. apríl 2008 @ 18:37
  3. Það var gaman að sjá ykkur þó í mýflugumynd væri og fá þessar góðu fréttir :)

    Ummæli ritaði Jóna Magga — 11. apríl 2008 @ 15:52

RSS-veita ummælaTrackBack URI

Rita ummæli

Powered by WordPress |•| Wordpress Themes by priss