Kermit

16. maí 2008

Og það er árið áttatíu og níu

Flokkað undir Almennt — dagger @ 14:37

Ó internet, ó internet!

Ég átti þennan og þessa og þennan og þessa og þennan svo eitthvað sé nefnt! Við Guðrún lékum okkur ekkert smá með þessa Fabuland karla, byggðum alltaf risastórt hús og allir voru með sitt hlutverk… rostungurinn var alltaf kóngurinn. Einn af “nýjustu” körlunum var flóðhestur, reyndar kvenkyns. Ég man hvað ég var fúl þegar hann týndist í leik hjá okkur Guðrúnu. Skil ekki hvernig, við vorum bara í leiknum “hendum dótinu aftur fyrir okkur inn í geymsluhillurnar og reynum svo að finna það”… og hann fannst aldrei ;)

Svo fyrst ég er byrjuð þá er þetta líka hressandi!  Fæ bara kitl í magann! Enda varla til sætari gaurar en þetta ;)

Og ein spurning að lokum… hvað hétu Smjattpattarnir á frummálinu? ;)

• • •

4 ummæli »

  1. Munch Bunch.

    Ummæli ritaði Óli Gneisti — 16. maí 2008 @ 14:51
  2. Það var ekkert smá gaman að sjá tuskudúkkurnar aftur :) Þær voru í miklu uppáhaldi á sínum tíma. Verst að Súsí skuli ekki finnast á netinu :(

    Ummæli ritaði Óskin — 18. maí 2008 @ 16:17
  3. ohhh… ég fæ alveg sting í magann líka…. ohh.. það var svo gaman í þá góðu daga….:) ég skil nú barasta ekkert í því afhverju það er ekki hægt að fá þetta lego dót ennþá… þetta var bara skemmtilegt og flott…:)

    og tuskudúkkurnar…. maður misst nú varla úr þátt… og skófólkið…. ohhhh… hvernig væri nú að sjónvarpið færi bara að sýna þetta aftur…. þessu gömlu góðu…

    Ummæli ritaði guðrúnh — 18. maí 2008 @ 18:51
  4. vá þvílíkt flashback!!!!!
    langar nú bara gífurlega mikið að horfa á þetta allt saman aftur:D
    oh He-man og She-ra líka…oooo

    Ummæli ritaði liz — 26. maí 2008 @ 8:26

RSS-veita ummælaTrackBack URI

Rita ummæli

Powered by WordPress |•| Wordpress Themes by priss