Dagger Brown?
Ég er Dagbjört og heiti það líka!
Er 26 ára gömul…
Ég er í MA námi í þjóðfræði við HÍ en er í fæðingarorlofi þessa mánuðina… semsagt að njóta lífsins með yndislega syni mínum Guðmundi Hrafnkeli (Umba)
Við fjölskyldan (ég+Daði+einkasonurinn) búum á Skaganum…
Ég þekki ótrúlega skemmtilegt fólk, elska góðan mat, er algjört örverpi, grúskari og með skipulagsþörf á háu stigi, þrífst á góðum bókum og tónlist, er með undarlegan húmor í anda Gary Larson og var úthlutað einum spékopp í tilefni af því!
