107484568436536057

Þá er enn ein vikan að renna sitt skeið á enda. Ótrúlegt miðað við hvað vikurnar þjóta hjá að það skuli enn vera janúar og meira að segja heil vika eftir af honum! Þessa dagana er heldur ekki hægt að komast hjá því­ að hlusta á alls konar sjálfskipaða sérfræðinga tjá sig um Evrópumeistaramótið í­ handbolta. Merkilegt hvað allir geta orðið spenntir fyrir því­ að fylgjast með landsliðinu fara að tapa einhverjum leikjum á einhverju móti í­ útlöndum. Ég skil þetta ekki. Svo var nú alveg dásamlegt að hlusta á í­þróttafréttirnar á Stöð 2 í­ morgun. Þar var sagt: „Íslenska liðið fékk hvorki við rönd reist.“ Gott að vita að í­þróttafréttamenn séu svona vel að sér í­ notkun á hvorki-né. Sí­ðar talaði þessi sami í­þróttafréttamaður um Snæfellnes, en þann landshluta hafði ég aldrei heyrt um áður þó svo ég hafi átt heima á Snæfellsnesi.