112479425080650509

Ég hef áhyggjur af því­ að Ísland sé að breytast í­ fasistarí­ki. Þessar áhyggjur mí­nar byrjuðu þegar Falun Gong (sem ég held að séu ákaflega varhugaverð samtök) stefndu fólki hingað til lands til að mótmæla komu Kí­naforseta (sem ég held að sé varhugaverðari en Falun Gong). Þessum mótmælendum var nefnilega komið fyrir í­ einhverjum tilvikum í­ fangabúðum á Reykjanesi. Aðrir mótmælendur voru hafðir þar sem ólí­klegt var að höfðingjarnir sæu til þeirra. Þeir fáu sem komust í­ sjónlí­nu voru fjarlægðir og það stundum með óþarflega harkalegum aðgerðum.
Af þessu hafði ég hins vegar ekki miklar áhyggjur þar sem ég taldi mig skynja að þessar aðgerðir nytu lí­tils stuðnings í­ samfélaginu og væru bara ofsafengin viðbrögð nokkurra öfgahægrimanna með fasí­ska tendensa.
Þegar ég sá í­ Fréttablaðinu á fimmtudaginn (þeir kalla þórsdaga það) að u.þ.b. 60% þeirra sem tóku þátt í­ netkönnun blaðsins voru því­ fylgjandi að mótmælendum Kárahnjúkavirkjunnar yrði ví­sað úr landi var mér eiginlega öllum lokið. Ég hélt nefnilega að það væru bara Ingvi Hrafn og aðrir hægrikjánar með svipaðan lýðræðisþroska sem fyndist í­ alvöru flott að brjóta mannréttindi á þeim sem þeir eru ósammála. Nú vil ég taka fram að mér finnst þetta mál að engu leyti snúast um Kárahnjúkavirkjun og hvort maður sé fylgjandi henni eða ekki. Málið snýst um það hvort við séum fylgjandi rétti fólks til að mótmæla og fá réttláta meðferð jafnvel þótt mótmælin séu í­ andstöðu við almannavilja, jafnvel þótt mótmælendur valdi einhverjum skaða að á því­ máli sé tekið sérstaklega en ekki notað til að magna upp andlýðræðislegan ofsa og viðbragða (eins og að ví­sa fólki úr landi) sem hvorki eiga sér lagalega né siðferðislega réttlætingu. Enn hef ég hvergi séð að nokkur mótmælenda (fyrir utan þann sem sletti skyrinu) hafi verið ákærður fyrir skemmdarverk. Ef lögreglan er farin að taka upp á því­ að elta fólk sem yfirvöld telja óæskileg, beita það harðræði og útlendingastofnun jafnvel farin að ví­sa fólki úr landi sem eru í­búar EES og hafa öll sömu réttindi hérlendis og Íslendingar, þá stefnum við hraðbyri í­ fasistarí­ki, svipað því­ og er nú þegar farið að myndast í­ Bandarí­kjunum og Bretlandi.
Þegar ég skoðaði þetta mál betur varð mér ljóst að sú þróun er reyndar löngu hafin hér á landi enda vandséð að finna útlendingafjandsamlegra land í­ Vestur-Evrópu en Ísland. útlendingastofnun hefur nánast undantekningalaust (held það finnist eitt dæmi um hið gagnstæða sí­ðustu 10 ár) ví­sað hælisleitendum burt og öll vinnubrögð þeirrar stofnunar einkennast einfaldlega af útlendingahatri sem einkum beinist að óhví­tum, ógermönskum og ókristnum. Þetta hljómar alltaf óhuggulegra og óhugnanlegra eftir því­ sem maður hugsar meir um það. Ég rétt vona að 60% þeirra sem sjá ástæðu til að taka þátt í­ þessari vefkönnun hjá Fréttablaðinu endurspegli ekki 60% þjóðarinnar því­ þá erum við í­ slæmum málum og bara tí­maspurspál hvenær við eignumst okkar eigin Kristalsnótt.