112846748102182530

Einu sinni fyrir langa löngu var lí­tið land þar sem fólk undi við leik og störf og flestir í­ þessu landi höfðu það bara nokkuð gott. Litla landið ómaði lí­ka af söng því­ á hverjum degi fóru söngvarar út á göturnar og sungu söngva sí­na fyrir fólkið. Söngvararnir sungu gömul lög og ný, lög sem þeir höfðu sjálfir samið og lög sem þeir höfðu lært af öðrum. Flestir sömdu þeir lí­ka lög sjálfir og ómældur tí­mi fór í­ að skrifa texta, fylgjast með því­ sem var að gerast í­ sönglistinni og að sjálfssögðu í­ æfingar.
Það var ekki auðveld vinna að vera söngvari. Það reyndi á sköpunargáfuna og var mikið álag á röddina. Enda voru margir söngvarar rámir að kvöldi og margir misstu úr dag og dag í­ söngnum vegna hálseymsla. Þó höfðu söngvararnir ákveðið og fengið samþykkt af rí­kisstjórninni í­ litla landinu að nóg væri að syngja í­ 28 tí­ma á viku. Fyrir þessu höfðu þeir barist árum saman og loksins fengið málum sí­num framgengt. Þeim fannst það reyndar frekar mikið því­ þeir vissu að söngvarar í­ öðrum löndum sungu margir hverjir í­ 20 – 24 tí­ma á viku. Rí­kisstjórnin í­ litla landinu borgaði lí­ka söngvurunum 10 skildinga á dag fyrir að syngja og það þótti mörgum nóg fyrir einhverja gaulara sem stóðu úti á götu og sungu í­ rétt rúma fimm tí­ma á dag. Tí­u skildingar dugðu lí­ka vel fyrir brauði og fyrir nokkrum árum höfðu söngvararnir bara fengið sex skildinga. Söngvararnir mundu það reyndar lí­ka að fyrir nokkrum árum hafði brauðið bara kostað einn skilding.
Söngvararnir voru lí­ka búnir að reyna árum saman að fá fleiri skildinga fyrir sönginn og allir í­ litla landinu virtust vera sammála um það að án söngs gæti fólkið ekki verið. Alltaf fengu þeir samt sama svarið. Söngmálaráðherrann sagði: „Það eru bara ekki til meiri skildingar til að borga ykkur.“ En sjálfur fékk söngmálaráðherrann 100 skildinga á dag. Svona hafði þetta gengið mjög lengi þangað til söngvararnir ákváðu að ef þeir fengju ekki fleiri skildinga ætluðu þeir að hætta að syngja. „Já, hættið þið bara,“ sagði söngmálaráðherrann. „Við skulum bara sjá hvað gerist.“ Svo söngvararnir hættu að syngja.
Til að byrja með virtist allt ganga sinn vanagang í­ litla landinu en eftir smá tí­ma fór að bera á því­ að fólkið var ekki lengur jafn glatt og áður. Afköst þess í­ vinnunni minnkuðu og það fór að bera á vandamálum sem spretta upp þegar fólk verður óánægt. Að sjálfssögðu skildu söngvararnir það. Þeir vorkenndu fólkinu sem varð að sinna sí­num daglegu störfum án þess að hlusta á sönginn en þeir voru staðfastir og ákveðnir í­ því­ að gefast ekki upp.
Eftir sjö vikur var ástandið í­ litla landinu orðið mjög slæmt. Fólkið krafðist þess að rí­kisstjórnin gerði allt sem hún gæti til að fá söngvarana aftur til að syngja. En söngmálaráðherrann var lí­ka ákveðinn og þess vegna sendi hann hermenn rí­kisins að ná í­ söngvarana til að draga þá út á göturnar og skipaði þeim að byrja að syngja aftur. Reyndar földu sumir söngvararnir sig og létu ekki sjá sig fyrr en daginn eftir en loks ómaði litla landið aftur af söng. Söngmálaráðherrann miskunnaði sig lí­ka yfir þá með því­ að lofa þeim heilum aukaskildingi á dag og þar að auki samþykkti hann að það væri nóg að hver söngvara syngi í­ 26 tí­ma á viku. Þeir fengju þá meiri tí­ma til æfinga og til að semja ný lög. Söngvararnir voru reyndar ekki ánægðir með þessi málalok enda mundu þeir þegar brauðið hafði kostað einn skilding og vissu sem var að þessi aukaskildingur frá söngmálaráðherranum dygði skammt.
Það voru lí­ka fleiri óánægðir en söngvararnir. Bæjarstjóri í­ einum bæjanna í­ litla landinu var lí­ka óánægður. Honum fannst söngvararnir latir og sagði: „Ég get sko alveg borgað söngvurunum í­ mí­num bæ 20 skildinga á dag fyrir að syngja ef þeir fara að vinna fulla vinnu eins og annað fólk.“ Bæjarstjórinn fékk lí­ka 100 skildinga á dag.
Sumir söngvaranna vildu fá að vita hvað bæjarstjórinn átti við með fulla vinnu og þeir vildu gjarnan fá 20 skildinga á dag fyrir að syngja. Þá sagði bæjarstjórinn: „Ég skal borga ykkur 20 skildinga á dag ef þið vinnið allan daginn og ég fæ að ákveða hvað þið syngið mikið.“ Söngvararnir spurðu hvort þeir fengju ekki tí­ma til að æfa sig, þjálfa röddina og semja ný lög. „Jú, jú,“ sagði bæjarstjórinn. „En ég ákveð hvað hver þarf að æfa sig mikið og við eigum fullt af góðum lögum. Ef við þurfum ný lög vel ég þann ykkar sem mér finnst semja bestu lögin og læt hann semja nokkur ný.“
Þarna lýkur sögunni því­ ég veit ekki hvernig hún endar. Kannski ákváðu söngvararnir að ganga að tillögu bæjarstjórans og kannski var hann skynsamur bæjarstjóri og lét þá ekki syngja meira en 26 tí­ma á viku og gaf þeim góðan tí­ma til að æfa sig. Kannski hafði hann góðan tónlistarsmekk og það var samið fullt af nýjum lögum en kannski hélt hann að það eina sem söngvararnir gerðu væri að fara út á göturnar og gaula eitthvað svo hann ákvað að þeir ættu að syngja allan daginn og þyrftu engan tí­ma til að æfa sig og semja ný lög.
Kannski voru söngvararnir lí­ka skynsamir og ákváðu að taka ekkert mark á bæjarstjóranum en halda áfram að reyna að fá fleiri skildinga fyrir að syngja 26 tí­ma á viku. Kannski tókst þeim það og kannski ekki. Við skulum bara vona að þeir hafi enn munað þann tí­ma þegar brauðið kostaði bara einn skilding og vita að sú tí­ð gæti komið að það kostaði 20.

Núna er Daví­ð bróðir minn lí­ka byrjaður að blogga og í­ tilefni af því­ bætti ég við tengli á hann á tenglalistann minn.