Eggert Sólberg
apríl 27th, 2007
apríl 27th, 2007
Kæru aðdáendur
Ég er kominn á barmmerki ásamt öðru framsóknarfólki. Þeir sem vilja fá barmmerki með mér geta fengið svoleiðis á Kaffi Kind, Laugavegi 33. Um er að ræða einstakan safngrip sem framleiddur er í takmörkuðu upplagi. Á Kaffi Kind er ég líka mjög oft í eigin persónu frá 10 á morgnanna fram á kvöld. Auk barmmerkja er næring í boði á staðnum, meistaradeildin og annað sjónvarpsefni, tölvur og símar. Mæli sérstaklega með staðgóðum hádegismat fyrir námsmenn í próflestri og aðra hungraða. Á Laugaveginum er alltaf til kaffi og með því. Ég hvet ykkur til að kíkja við.
P.S. Eggerts-handklæðin og Eggerts-dúkkurnar koma í næstu viku.

Ég verð að eignast svona merki, aldrei að vita nema maður láti sjá sig á Kaffi Kind. Væri sko alveg í til að sjá þig á þingi (þegar Framsóknarflokkurinn verður liðin tíð og þú genginn til liðs við einhvern annan flokk
). En helsta baráttumál mitt næstu dagana verður “Auður Lilja á þing”!
Sæll frændi þú heldur einu merki fyrir mig átt mitt atkvæði öruggt.
Klikkað stöff Eggert!
Ég held að núna sé pottþétt von á því að maður kíki í heimsókn á Laugaveginn.