Eggert Sólberg

Hræsnari dagsins er…

Ögmundur Jónasson. Í nýjum pistli á heimasíðu sinni gagnrýnir hann auglýsingar ungra framsóknarmanna fyrir að vera ómálefnalegar. Á meðan dreifir hans flokkur barmmerkjum eins og “Af hverju ekki ríkisstjórn með zero Framsókn” og “Aldrei kaus ég Framsókn”.

3 Responses to “Hræsnari dagsins er…”

  1. Elías Jónon 30 apríl 2007 at

    Ekki kvarta ég yfir þessum auglýsingum, er reyndar nær því að fagna þeim, en vil þó benda þér eitt.

    Það að segjast aldrei hafa kosið Framsókn eða vilja flokkinn úr ríkisstjórn er pólitísk yfirlýsing. Í því að gera andstæðingum upp skoðanir og framleiða svo auglýsingar með lyginni felst engin pólitísk yfirlýsing.

    Reyndar held ég að Ögmundur sé ekki hræsnari frekar en þið. Þið kvörtuðuð illega þegar fólk fór að lýsa pólitískri afstöðu sinni með því að bera merki sem á stóð „Aldrei kaus ég Framsókn“.

    Þessi merki urðu upphaflega til í einhverju gríni við barmmerkjagerð fyrir kosnigarnar í fyrra. Það stóð aldrei til að framleiða neitt magn af þeim en eftirspurnin varð bara svo gríðarleg að við höfðum ekki undan við að framleiða þau. Ég skal alveg gangast við því að þessi merkjagerð beri með sér einhver einkenni neikvæðar kosningabaráttu en fyrst og fremst var þetta bara brandari sem hitti í mark. Auglýsingarnar ykkar eru þessu gjörólíkar og virðast vera hreinræktuð niðurrifstarfsemi, það er a.m.k. lítið um pólitík í þeim.

  2. Elías Jónon 30 apríl 2007 at

    …en þetta er nú samt pínu fyndið ;)

  3. Stefán Bogion 01 maí 2007 at

    Er þetta ekki einmitt vandamálið Elli. Það er fyndið þegar þið gerið grín að öðrum, en ekki þegar aðrir gera grín að ykkur. En annars hló ég nú líka dálítið að ,,aldrei kaus ég framsókn” merkjunum ykkar. Uppáhaldið var samt alltaf,, Halldór í herinn og herinn burt!” Mér fannst það skondið. Og bara svona svo því sé haldið til haga að þá er ekkert í auglýsingunni okkar sem æðstu menn þíns flokks hafa ekki sagt sjálfir.

Comments RSS

Leave a Reply