Eggert Sólberg

Í bíó með hjörðinni

Hjarðdýrin hópast nú á Simpsons myndina enda búin að fá nóg af Lúkasi. Ef ég hefði gert meira úr Simpsons verkefninu mínu í Þjóðfræði barna og unglinga hefði ég getað birt það opinberlega á meðan æðið gengur yfir og sinnt þannig hjörðinni. Ég get samt flokkast sem hjarðdýr eftir öðrum leiðum. Ég fór nefnilega á myndina í gær. Það var reyndar ekki vegna þess að ég varð að sjá hana á undan öllum öðrum heldur vegna þess að mér var boðið á hana. Kannski vegna þess að ég er ekki manískur aðdáandi leið mér eins og hálfvita fyrir utan bíósalinn enda var ég ekki með Simspons grímu, Simpsons húfu eða í Simpsons bol. Ég á ekki einu sinni Simpsons sokka. Á leiðinni út leið mér enn verr þegar ég áttaði mig á því að ég var örugglega einn af fáum í salnum sem fannst myndin ekki vera mesta meistaraverk kvikmyndasögunnar. Hún var samt alls ekki slæm. Ég er til dæmis með þetta atriði á heilanum.

3 Responses to “Í bíó með hjörðinni”

  1. Hafþóron 28 júlí 2007 at

    Fannst þér ekki gaman.
    Haffi frændi

  2. Eggerton 28 júlí 2007 at

    Jú, en finnst samt þættirnir miklu betri :-)

  3. Rósaon 30 júlí 2007 at

    Bwahahaha! Ég hef reyndar ekki séð myndina ennþá en þetta atriði er spilað viðstöðulaust í auglýsingum og ég er gjörsamlega með þetta á heilanum!

Comments RSS

Leave a Reply