Eggert Sólberg

Afrakstur gærdagsins

Ég lauk mínu síðasta embættisverki sem gjaldkeri Þjóðbrókar í gær þegar ég bakaði handa svöngum þjóðfræðinemum köku. Það er hefð í þjóðfræðinni að fráfarandi stjórn baki köku sem er í laginu eins og eitthvað þjóðfræðaefni. Að neðan er afraksturinn. Mér finnst að ég eigi að fá plús fyrir að reyna þó einhverjir hafi kallað hana “dauðakindarköku” og aðrir sem sögðu sagt að hún líktist einna helst sjálfdauðri kind upp á heiði. Sjálfum fannst mér kakan bragðast ágætlega þrátt fyrir útlitið.

sjalfdaud.jpg

5 Responses to “Afrakstur gærdagsins”

  1. Sigrúnon 07 sept. 2007 at

    Mér finnst kakan kúl :D

    Ég hef reyndar séð slatta af dauðum kindum og þær liggja oftast á hliðinni með lappirnar krepptar upp að líkamanum, svo að mér finnst þessi nú ekkert voðalega dauðaleg ;)

  2. Hafþóron 08 sept. 2007 at

    hæ eggert geturu ekki gert svona kinda köku fyrir mig í afmælisveisluna mína :D þá ertu besti frændi kær kveðja þinn litli rauðhærði frændi

    ps.haffi

  3. Rósaon 09 sept. 2007 at

    Glæsileg kaka! Ég greinilega missti af miklu :( En ég er sammála Sigrúnu: þeir sem hafa séð dauða kind vita að hún liggur afvelta (lesist: með lappirnar upp í loft) eða að minnsta kosti á hliðinnni. Þessi kind virðist bara vera nokkuð spræk og nokkuð ljóst að krummi þorir ekkert í svona hrausta rollu! kv. Rósa

  4. Eggert Sólbergon 09 sept. 2007 at

    Ég þakka stuðninginn.

  5. Íris Döggon 11 sept. 2007 at

    Þessi kaka er snilld:)
    Reyni næsta stjórn að toppa þetta!
    Annars góð hefð sem Eydís á öruglega heiðurinn af eins og mörgu öðru:)

Comments RSS

Leave a Reply