Eggert Sólberg
okt. 17th, 2007
okt. 17th, 2007
Bannað að dansa nakin(n)
Þessa dagana eru nefndir Borgarbyggðar að endurskoða lögreglusamþykkt sveitarfélagsins. Eina athugasemd félagsmálanefnd við samþykktina var sú að nefndin vill banna nektardans í sveitarfélaginu og er það bara hið besta mál. Landbúnaðarnefnd hafði talsvert fleiri athugasemdir sem snéru m.a. að meðferð skotvopna á einkalöndum, aldri barna á hestbaki og merkingum lögbýla. En bann við dansi á adams- og evuklæðum nýtur svo víðtæks stuðnings í Borgarbyggð að landbúnaðarnefnd af öllum nefndum vill líka láta banna nektardans. Ætli það sé landbúnaðarnefnd í Kópavogi?