okt. 20th, 2007
ANTM
Þeir sem semja textann í dagskrárkynningum sjónvarpsstöðvanna eru oftast einhverjir snjallir auglýsingasmiðir á þeirra vegum sem vita hvað fer vel ofan í áhorfendunur. Eitthvað segir mér að eftirfarandi tilkynninging sem ég rakst á í Dagskrá vikunnar í morgun sé ekki samin á auglýsingastofu Skjás eins. Áhugaverð lesning engu að síður.
“Skjár einn sýnir kl. 20:30 matreiðsluþátt Giödu sem gerir alveg dásamlega hluti við matvöru og kveikir í manni allar tegundir hungurs og í beinu framhaldi af því kl. 21:00 hefst America’s Next Top Model þar sem vannærðar og vansælar stúlkur níða háhælaðan skóinn af hvor annari þar til eingöngu ein stendur eftir. Hjá Giödu sjáum við Rib-Eye steik með rucola salati og grillaðri papriku, kjúklingum piccata, spergilkál og grænar baunir og svo ricotta ost með hunangi og hindberjum. Í súpermódelþáttunum verður svo lítið annað en skinn og bein.”
PS. Vonsviknir lesendur síðunnar hafa bent mér á að síðustu tvær fyrirsagnir hafi innihaldið villandi upplýsingar um efnisinnihald færslanna. Einhverjir þeirra ruku til í þeirri veiku von að finna hér jafnvel einhverja nekt. Ritstjórn síðunnar ákvað á fundi sínum í morgun að skipa starfshóp til þess að fara yfir málið frá öllum hliðum og er honum ætlað að skila af sér tillögum til úrbóta fyrir 1. mars 2008.
Alveg snilldar lýsing!
Já, mér fannst það.
hehe
voðalega er þessi starfshópur lengi að fara yfir málið!