Eggert Sólberg

Baccalaureus Artium

Loksins hef ég tíma til að líta aðeins upp úr námsbókunum og minnast aðeins á laugardaginn síðasta. Háskóli Íslands gjörði það kunnugt þá klukkan 14:06 að Eggert Sólberg Jónsson hefði lokið tilskyldum prófum í þjóðfræði með safnafræði sem aukagrein og hlotið lærdómstitilin baccalaureus artium. BA gráðan er varða á leiðinni áfram menntaveginn sem engin leið er að sjá fyrir hvar endar. Ég geri þó ráð fyrir því að stóra útskriftin verði þegar ég klára MA prófið, vonandi eftir sirka eitt og hálft ár. Ég þakka ykkur fyrir stuðninginn síðustu þrjú ár og hamingjuóskirnar um helgina.

4 Responses to “Baccalaureus Artium”

  1. Dagbjörton 29 okt. 2007 at

    Til hamingju! :)

  2. Helgaon 29 okt. 2007 at

    Til hamingju með BA gráðuna!

  3. Hallaon 30 okt. 2007 at

    Til hamingju með áfangann :) gangi þér vel í masternum.. massar hann líka, engin spurning :)

  4. Eggert Sólbergon 30 okt. 2007 at

    Ég þakka enn og aftur fyrir mig.

Comments RSS

Leave a Reply