Eggert Sólberg

Gleðilegan feita fimmtudag

Í dag er feiti fimmtudagurinn. Við Íslendingar þurfum að taka upp þennan hátíðisdag og ættum við að fá Pólverja til að hjálpa okkur við að innleiða þann sið. Þar í landi er dagurinn einnig þekktur sem “donuts day” enda reynda landsmenn þá að torga eins mörgum kleinuhringjum og mögulegt er. Líklega hefur þessi siður orðið til vegna þess að fólk þurfti að klára feiti, egg og mjólkurafurðir áður en fastan gekk í garð. Þeir sem föstuðu áttu síðan skilið að fá smá loka góðgæti í síðustu viku fyrir föstu. Ítalir halda hins vegar upp á “barbecue thursday” sem mætti mín vegna taka upp í leiðinni. Fyrir þá sem vilja innleiða fleiri daga má benda á pönnukökudaginn sem þekkist í Bretlandi og víðar. Hann köllum við Sprengidag. En þar sem ég er í mjög svo fjölþjóðlegu umhverfi núna held ég upp á alla þessa daga s.s. donuts day, fat thuesday, fetter dienstag, fastelavn, bolludag, sprengidag, öskudag o.s.frv.

Niðurstaðan af þessu er sem sagt sú að ef ykkur langar í kleinuhring eða annað sætabrauð í dag þá hafið þið afsökun. Og fyrst þið hafið afsökun þá ættuð þið að notfæra ykkur tækifærið.

4 Responses to “Gleðilegan feita fimmtudag”

  1. Dagbjörton 31 jan. 2008 at

    má telja kókosbollu með? ;)

  2. Eggert Sólbergon 31 jan. 2008 at

    Það hlýtur að vera, ég hef allavega ekki enn rekist á neitt sem bannar það…

  3. Einaron 08 feb. 2008 at

    Þú ert vonandi byrjaður í ræktinni?

  4. Eggert Sólbergon 08 feb. 2008 at

    Hehe, ætli ég þurfi ekki að byrja hreyfa mig fljótlega.

Comments RSS

Leave a Reply