Eggert Sólberg
feb. 28th, 2008
feb. 28th, 2008
Hitler býður fram
Þetta finnst mér vera einstaklega skemmtileg frétt. Sé nafnið eitthvað að flækjast fyrir Barack Hussien Obama þá ætti hann að skoða nöfn frambjóðenda í Meghalaya héraði á Indlandi. Þar eru m.a. í framboði Frankenstein Momin, Billy Kid Sangma og Adolf Lu Hitler Marak. Aðrir stjórnmálamenn frá þessu héraði heita t.d. Lenin R. Marak og Stalin L. Nagmin.