Eggert Sólberg

Lög um helgidagafrið

Ég hef áður tjáð mig á þessum vettvangi um lög um helgidagafrið og er enn sömu skoðunar. Lög þar sem kveðið er á um að bannað sé að trufla helgihald eiga rétt á sér, en öllu furðulegri eru lög þar sem kveðið er á um hvað má gera og hvað ekki á helgidögum. Ég spilaði reyndar ekki ólöglegt bingó í dag heldur sat við skriftir. Ég efast um að það sé ólöglegt annarsstaðar en á Íslandi að spila bingó í dag. Danir loka þó verslunum í dag og fylgja þannig sama sið og við Íslendingar. Þegar ég fór í búðina rétt fyrir lokun á miðvikudag kepptust Danirnir við að byrgja sig upp af bjór til þess að þrauka þessa tvo frídaga. Annars furða sig margir skiptinemar hér á þessum helgidagafríum Dana þar sem þeir eru alls ekki sérstaklega trúaðir. Meira að segja Ítalarnir og Pólverjarnir segja mér að hjá þeim séu verslanir opnar í dag og í gær. Merkilegt ef satt er.

7 Responses to “Lög um helgidagafrið”

  1. Ólion 21 mars 2008 at

    Ekki loka Írar.

  2. Maja og Atlion 21 mars 2008 at

    Við slepptum bingóinu í dag en héldum daginn hátíðlegan í pönnsum hjá ömmu :)

  3. Eggert Sólbergon 21 mars 2008 at

    Hefði ég vitað af pönnsunum hefði ég að sjálfsögðu reynt að mæta. Ég hlýt að eiga inni pönnsur í maí.

  4. Hallaon 21 mars 2008 at

    Það var alveg ótrúlega mikið opið í dag.. 10-11 með opið allan sólarhringinn um páskana.. bíóin.. hyrnan, Shell og Olís öll með opið í Borgó.. allir hættir að pæla í þessum frídögum held ég..

  5. Eggert Sólbergon 22 mars 2008 at

    Nú jæja, viðhorfið í samfélaginu er þá að breytast og kröfurnar um lengri opnunartíma eru að aukast. Þessi helgi fer að verða eins og verslunarmannahelgin þar sem allir fá frí nema starfsfólk verslana.

  6. Sigrúnon 22 mars 2008 at

    Það er samt alls ekki allt lokað hér, hvorki í gær né á páskadag, allavega auglýsti døgnnetto venjulegan opnunartíma um páskana, 7-11 er opið allan sólarhringinn eins og alltaf, og svo höfum við hér í nørrebro “múslimskar” búðir á hverju götuhorni sem aldrei loka ;)

  7. Eggert Sólbergon 22 mars 2008 at

    Ekki bý ég svo vel að hafa þessar verslanir í nágrenni við mig. Ég komst reyndar að því í gær að í mesta innflytjendahverfinu hér eru einhverjar verslanir opnar um páskana. Jú og 7-11 er opið niður í miðbæ.

Comments RSS

Leave a Reply