Eggert Sólberg

Geir og Ingibjörg árið 1992

Sunnudaginn 3. maí 1992 birtist meðfylgjandi auglýsing í Morgunblaðinu. Þá ræddu Geir og Ingibjörg kosti og galla aðildar að Evrópubandalaginu (nú Evrópusambandinu) fyrir opnum tjöldum. Nú finnst mér sá fyrrnefndi helst vilja sussa á umræðuna um kostina og Ingibjörg sussa á umræðuna um gallana.

geirogingibjorg.jpg

Félag sjálfstæðismanna í Langholts- og Lauganeshverfi

Ísland í Evrópubandalagið???

Félög sjálfstæðismanna í Langholts- og Laugarneshverfi boðar til almenns fundar að Holiday Inn miðvikudaginn 6. maí kl. 20.30. Fundarefni: Ísland og Evrópubandalagið.

Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri gerir grein fyrir áhrifum EB aðildar á íslensk efnahagsmál og stjórnkerfi. Alþingismennirnir Geir H Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fjalla um kosti og galla EB aðildar. Fyrirspurnir og umræður. Allt sjálfstæðisfólk velkomið, takið með ykkur gesti.

Stjórnirnar

Comments RSS

Leave a Reply